Um Hlutverkasetur
Hlutverkasetur býður upp á umgjörð, hvatningu og stuðning fyrir þá sem vilja viðhalda virkni á markvissan hátt eða auka lífsgæði sín. Stefnt er að því að viðhalda eða efla sjálfsmynd einstaklinga í gegnum verkefni, fræðslu og umræðu. Leiðarljós Hlutverkaseturs er virk samfélagsþátttaka, aukin lífsgæði og að þátttakendur sinni hlutverkum sem gefi lífnu tilgang og þýðingu, hvort sem er innanhúss, á vinnumarkaði eða í námi.
Eitt af því mikilvægasta í lífinu er að hafa hlutverk. Starfsemi Hlutverkaseturs er mikilvægt samfélagsverkefni sem aðstoðar einstaklinga sem einhverra hluta vegna, tímabundið eða til lengri tíma, hafa misst sín hlutverk, t.d. í starfi eða námi. Einstaklingar með skerta starfsgetu — og þeir sem hafa verið lengi án atvinnu — missa oft vonina, því þeir trúa því ekki að þeir eigi erindi á meðal fólks. Þar sem vinna hefur ekki aðeins fjárhagslegan heldur einnig félagslegan ávinning er mikilvægt að vera í styðjandi umhverfi á meðan þú finnur út næstu skref.
Hlutverkasetur var stofnað í maí 2005 og starfsemi hófst 2006. Starfssemin byrjaði í Lækjargötu 4 en flutti um sumarið 2007 að Laugavegi 26. Í nóvember 2009 var síðan flutt í Borgartún 1 þar sem Hlutverkasetur er enn til húsa.
Hlutverkasetur leggur áherslu á að allir geti lagt eitthvað af mörkum og hafa því margir boðið fram krafta sína og þekkingu. Þessi viðbót hefur jákvæð áhrif á starfsemina.
Hlutverkasetur er í samstarfi við og styrkt af Vinnumálastofnun (VMST), Reykjavíkurborg, stofnunum innan félags- og heilbrigðisgeirans og einstaklingum.
Markmið Hlutverkasetur
- að styðja þá sem misst hafa hlutverk við að ná þeim aftur eða uppgötva ný
- að nýta þekkingu og reynslu fólks
- að auka lífsgæði
- að auka þátttöku í samfélaginu
- að draga fram þau margföldunaráhrif sem verða til þegar einstaklingar ná stjórn á eigin lífi
- að sýna fram á mikilvægi umhverfisþátta
- að draga úr fordómum
Leiðir
- hugmyndafræði valdeflingar og líkansins um iðju mannsins (MOHO)
- þekking notenda og fagfólks er lögð til grundvallar og unnið út frá jafningjagrunni
- varpað er ljósi á hvetjandi leiðir
- unnið er út frá forsendum hvers og eins, vilja og áhuga
- störf og ýmis verkefni
- stuðningur við atvinnuleit og aðlögun á vinnustað
- eftirfylgd