Fréttainnskot í gær

Skemmtileg umfjöllun sem tengist okkur í fréttunum í gær.

http://www.ruv.is/sarpurinn/frettir/25052014/atvinnulausir-i-fataektargildru

Frá liðinni viku

Við þökkum iðjuþjálfanemum frá Háskólanum á Akureyri fyrir skemmtileg erindi í vikunni. Hér er mynd af seinna erindinu sem kallaðist: Töfrarnir utan þægindarammans!

april-td-erindi-nema-ha-022

Takk Nói Siríus!

Nói Siríus hefur styrkt Hlutverkasetur um þennan girnilega páskaglaðning.

Við ætlum að „stúta“ eggjunum í unglinghópnum í dag í tilefni þess að þetta er síðasta skiptið fyrir sumarfrí.

Takk Nói Siríus!

styrkur-fra-noa-sirius-001

Kveðjustund Hönnu

Í gær fimmtudaginn 13.mars kvöddum við Hönnu iðjuþjálfanema frá Finnlandi sem er búin að vera með okkur í tvo mánuði.
Takk fyrir samveruna Hanna!

hanna-ofl-i-mars-005

Leiklistaráhugafólk sameinist!

LIST ÁN LANDAMÆRA – Á MÖRKUNUM

Auglýst er eftir skapandi fólki til að vera með og skemmta sér saman við að búa til gjörninga- og götuleikhús þar sem fjallað verður um allt og alla sem eru á mörkunum.
Okkur vantar leikara, söngvara, hljóðfæraleikara, leikstjóra, búningahönnuði, sminkur, höfunda, hugmyndasmiði og fjöllistamenn

Næsti undirbúningsfundur verður miðvikudaginn 19. mars, kl. 15 – 17 (þrjú til fimm) í Hlutverkasetri.

LEIKHÓPUR HLUTVERKASETURS
SÝNIR LAUGARDAGANA 12. OG 26. APRÍL

Leiklistarstarf Hlutverkaseturs nýtur styrks

Góðir gestir komu í Hlutverkasetur miðvikudaginn 6. mars. Það voru þau Ólafur Ó Johnson og Valdís Albersdóttir sem fyrir hönd Ó Johnsons og Kaaber veittu List án landamæra og Hlutverkaseturleiklistahópnum styrk til þátttöku í listahátíðinni List án landamæra. Hátíðin verður haldin um allt land í apríl og maí og mun leiklistahópur Hlutverkaseturs vera með ýmsa gjörninga á þessu tímabili. Þau Trausti Ólafsson leiklistakennari í Hlutverkasetri og Íris Stefanía Skúladóttir fulltrúi List án landamæra veittu styrknum móttöku.

styrkur-o-jonsson-og-koper-008

f.v. Valdís Albersdóttir, Ólafur Ó Johnson, Elín Ebba Ásmundsdóttir, Sylviane Pétursson, Íris Stefanía Skúladóttir, Hlynur Jónasson, Trausti Ólafsson